Sagan

BRA – Bílasprautun og Réttingar Auðuns ehf. var stofnað 1. janúar 1990 af Auðunni Hilmarssyni.

Árið 2013 tók Jón Grétarsson við rekstri fyrirtækisins og rekur fyrirtækið ásamt því að vinna við réttingar og sprautun.

Í dag er fyrirtækið til húsa á Auðbrekku 27 í Kópavogi og er verkstæðið búið fullkomnasta tækjabúnaði sem völ er á.

Komdu í heimsókn og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig!

Metnaður

Starfsmenn eru allir sérþjálfaðir og sækja þeir námskeið bæði hérlendis sem og erlendis, til að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast í faginu.

Okkar markmið er að vera í fremstu röð fyrirtækja á sviði tjónaviðgerða.
Við leggjum mikið upp úr góðum tækjabúnaði og að starfsmenn fylgi öllum gæða- og framleiðslustöðlum.

Pantaðu tíma í síma 554-2510

Okkar helstu samstarfsaðilar

Ýmiss fyrirtæki

KAPP – Þeir sjá um áfyllingu og viðhald á AC kerfum (aircon kæling) | www.kapp.is

Bílhúsið  Bifreiðarverkstæði – Þeir sjá um allt sem tengist hjólabúnaði og hjólastillingar  Bílhúsið

Vélastilling sf. - Þeir sjá um allt sem viðkemur vélastillingum Vélastilling sf

Dekkjahúsið – Þeir sjá um allt sem viðkemur dekkjum fyrir okkur | www.dekkjahusid.is

Plastviðgerð Grétars – Hann sér um allar stærri plastviðgerðir fyrir okkur | www.plastvidgerdir.is

AB varahlutir –  umboðsaðili fyrir Glasurit bílalökk og önnur efni sem við notum | www.ab.is

Tryggingarfélög

Sjóvá | www.sjova.is
VÍS | www.vis.is
Tryggingarmiðstöðin | www.tm.is
Vörður | www.vordur.is
ABÍ Tryggingar | www.abi.is

Bílaleigur

AVIS bílaleiga | Þeir sjá um alla bílaleigubílana fyrir okkar viðskiptavini | www.avis.is

– Við erum Cabas verkstæði, stundum kallað tryggingarverkstæði og hingað koma tjónabílar reglulega í tjónaviðgerðir. Láttu 5 stjörnu bílaréttingar- og bílamálningarverkstæðið okkar gera bílinn þinn eins og nýjann