BGS – Bílasprautun og Réttingar Auðuns ehf. var stofnað 1. janúar 1990 af Auðunni Hilmarssyni.
Árið 2013 tók Jón Grétarsson við rekstri fyrirtækisins og rekur fyrirtækið ásamt því að vinna við réttingar og sprautun.
Í dag er fyrirtækið til húsa á Auðbrekku 27 í Kópavogi og er verkstæðið búið fullkomnasta tækjabúnaði sem völ er á.
Komdu í heimsókn og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig!
Starfsmenn eru allir sérþjálfaðir og sækja þeir námskeið bæði hérlendis sem og erlendis, til að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast í faginu.
Okkar markmið er að vera í fremstu röð fyrirtækja á sviði tjónaviðgerða. Við leggjum mikið upp úr góðum tækjabúnaði og að starfsmenn fylgi öllum gæða- og framleiðslustöðlum.
Pantaðu tíma í síma 554-2510
Bílasprautun og Réttingar Auðuns er vottað
réttingaverkstæði af Bílgreinasambandinu og tryggingafélögunum.
Bilgreinasambandið
Það tryggir að viðskiptavinurinn er að fá bestu viðgerð og þjónustu sem völ er á.
Gerðar eru miklar kröfur í vottunarferlinu um gæði viðgerðarinnar, allt frá móttöku bifreiðar, réttingu, málningu, frágang og afhendingu hennar.
Recent Comments